Verum hipp og kúl !
Þrátt fyrir miklar frosthörkur þar sem af er vetri, stend ég uppréttur bjartsýnn á framtíðina. Hlýnandi veður síðustu daga hefur mikið að segja og sú birta sem fylgir snjónum.
Esjan er samt ansi tignarleg svona fannhvít. Akrafjallið er ekki síðra og ekki laust við að manni finnist maður hálf máttlaus og aumingjalegur í návist fjallsins.
Annars er hitastig algert hugarástand. Þrátt fyrir mikinn raka í þeim kulda sem smýgur í gengum líkamann, þá getur maður verið sáttur við sjálfann sig og sín verkefni. Hitastig ræður engu um það. Oft þarf bara smá jákvæðni og framsýni í huga og gjörðum.
Og sé manni kalt þá bregður maður sér bara á Sufjan Stevens tónleika, það gerist ekki betra en það í Fríkirkjunni. Tónleikar ársins segja menn og konur líka.
Talandi um jákvæðni og aðallega framsýni þá verður mér hugsað til orgeltónlistar. Apparat Organ Kvartett slógu enn og aftur rækilega í gegn á síðustu Airwaves-hátíð. Hlusta má á þá framsýnu tónleika, hér.

1 Comments:
At 29 nóvember, 2006 23:59,
Nafnlaus said…
Konur eru líka menn :)
Toby
Skrifa ummæli
<< Home