Hagfræði á Hrónsöld

Hagfræðilegar staðreyndir og/eða vangaveltur

mánudagur, október 02, 2006

Ímynd mórorhjólamanna
Nú hafa mótorhjólakappar stigið fram og sagt hingað og ekki lengra. Bætt ímynd segja þeir. "Við viljum betri umfjöllun í fjölmiðlum". Gott og blessað.

Maður á aldrei að vera með sleggjudóma. Hins vegar hef ég ítrekað orðið vitni af ofsaaksri mótorhjólamannna. Við erum að tala um kannski 70-90 km/klst yfir hámarkshraða. Þó ber að varast að fullyrða að allir séu eins og svarti sauðurinn. Þetta er þó áberandi.

Hafið þið einhverja skoðun á þessu ?

4 Comments:

  • At 03 október, 2006 03:48, Anonymous Nafnlaus said…

    Einmitt nú í kvöld sat ég fastur á ljósum, sennilega þriðji eða fjórði í tvíbreiðri röð og þá brunar á milli raðanna tveggja einhver mótorhjólaapi sem vissi greinlega að það var að koma grænt og hægði ekki á sér og ætli hann hafi ekki verið á svona 100-105 þegar hann flaug þarna á milli og milið ansi mjótt og var kominn hinumegin yfir gatnamótin áður en gula ljósið kom.
    Ég held að í svona 70% tilvika þegar maður keyrir um götur borgarinnar og á vegi manns verður mótorhjól þá keyri viðkomandi á 20-30kmh yfir umferðahraða (sem er þó yfirleitt 10-15kmh yfir löglegum hraða). En þessir menn taka auðvitað ábyrgð á eigin lífi!
    Kveðja Bjarni Þór.

     
  • At 03 október, 2006 13:14, Anonymous Nafnlaus said…

    En réttlætir það gjörðir þeirra ?

     
  • At 03 október, 2006 22:45, Anonymous Nafnlaus said…

    Ég held það sé með þessa eins og aðra. Örfáir einstaklingar sverta hópinn og oft eru það örugglega sömu "fíflin" sem menn verða varir við út um allann bæ aftur og aftur. Hinir illræmdu Sniglar t.d. eru upp til hópa hinir bestur menn og (konur).

    bkv

    Bjarni Gaukur

     
  • At 04 október, 2006 04:37, Blogger Sólskinsfífl nútímans said…

    Nei, það réttlætir ekki gjörðir þeirra. Hins vegar eru minni líkur á því að þeir valdi öðrum tjóni t.d. dauða vegna þess að þeir eru á mótorhjóli - þeir myndu draga enn meira úr líkunum á dauða annarra ef að þeir væru svo á línuskautum á 115kmh en væntanlega auka sínar líkur verulega.

    Það má vel vera að þetta séu sömu gæjarnir og ég efast ekki um að þetta sé gott fólk upp til hópa, eins og í flestum hópum almennt.

     

Skrifa ummæli

<< Home